Vesen á síđunni.Klara Sigríđur Sveinsdóttir
Var búin að skrifa heilmikla nýársfærslu, sem týndist einhvers staðar í frumskógum Internetsins. Eftir stendur bara fyrirsögnin og síða sem er öll í vitleysu. Er aðallega að skrifa þetta til að athuga hvort þessi færsla verður eins. Ég vonaðist til að þetta myndi lagast, væri svona sólarhringsvitleysa en aldeilis ekki. Skrifaði færsluna 4. janúar og síðan er svona ennþá. Nú er að vista og athuga hvernig þetta kemur út. Þetta virðist vera í lagi og það er spurning hvort maður láti þetta vera svona en mikið ótrúlega fer þetta útlit í taugarnar á mér. Sendi umsjónaraðila tölvupóst og það verður gaman að vita hvort eitthvað kemur út úr því. Er að mana mig upp í að skrifa aftur annálinn sem ég var búin með og að setja inn allar myndirnar aftur. En eftir stendur að þessi færsla virðist vera í fínu lagi. Sé til...Kominn timi á blogg.Klara Sigríđur Sveinsdóttir
En fyrst að bókalestri, er að verða búin með Horfinn, kannski 20-30 blaðsíður eftir. Er ekki búin að ákveða næstu bók. Það er náttúrulega fullt af bókum sem eru að koma út, en það er svo gott að vera með þetta í kiljum.
Ég er komin í jólafrí í Háskólanum. Kláraði yfirferð á verkefnum þann 15. desember. Það var bara eitt próf hjá mér í nám og kennsla á miðstigi og ég held að mér hafi gengið bærilega í því. Ég var að fá fyrstu einkunnina í gær. Fékk 9.5 í Áföll í nemendahópnum, hæðsta einkunnin,get ekki kvartað yfir henni. Nesskóli fer í jólafrí á morgun, endum daginn með stæl eins og alltaf. Hangikjöt í matinn.
Jólaundirbúningurinn gengur vel, bakaði tvær sortir í gær, og hnoðaði eina. Endaði svo á að hnoða í rúgbrauð og það er að klárast núna um áttaleytið. Yndisleg lykt í húsinu. Tiltektin er langt á veg komin, baðið náttúrulega alveg nýtt, málaði tölvurýmið og herbergið hans Sveins Fannars. Er meira að segja búin að fara yfir bókahillurnar og þrífa þær. Núna er það bara eldhús og stofan sem eru eftir. Þreif bökunarofninn áður en ég byrjaði að baka og þegar það er búið er mikið búið í eldhúsinu.
Er aðeins byrjuð að skreyta. Náttúrulega eru allar seríur komnar upp, en ég er líka búin að setja upp grenilengjurnar og svoleiðis dót.

Einnig er búið að skreyta utanhúss og núna erum við farin að safna seríum á stóru öspina fyrir utan hús. Tók algjöra jólakortsmynd af húsinu um daginn.

Þar til næst... Klara
Fréttir...Klara Sigríđur Sveinsdóttir
Jæja þá er ég búin í vettvangi á Eskifirði og liggur leiðin suður á morgun. Ég keyri upp í Egilsstaði um miðjan dag og Birta kemur svo á bílnum niðureftir seinna sama dag. Hún er á námskeiði í Þjóðleikhúsinu þessa helgina á vegum skólans. Spennandi.
En eins og ég sagði er ég búin með vettvanginn og við enduðum á þemasýningu á föstudaginn. Mikið rosalega er búið að vera gaman að vinna við þessa sýningu. Ég byrjaði fyrsta daginn á að fara tvær ferðar á Sjóminjasafnið, þar fengum við leiðsögn um safnið. Þetta er flott safn, fremst er krambúð og fyrir aftan er svo sjóminjasafnið, það sem snýr að sjónum er niðri en annað eins og til dæmis, brjóstsykursverksmiðjan er uppi. Hina tvo dagana var ég að hlusta á viðtöl við gamla Eskfirðinga og færa yfir á blað og það var svo spennandi. Þetta voru svo skemmtilegar frásagnir og margt sem þetta fólk gat sagt frá. Yfirleitt var þetta fólk fætt nokkrum árum fyrir seinni heimstyrjöld og mundi vel eftir því og atburðum sem þá gerðust. Það voru t.d. tvær sem mundu eftir því þegar flugvélin flaug í fjallið fyrir ofan Vöðlavík og þær mundu meira að segja eftir því hvernig veðrið var. Ég gat ekki betur séð en að þessar frásagnir vektu mikla athygli á sýningunni sem var haldin í hádeginu á föstudeginum.
Á sýningunni var líka boðið upp á mat, sem krakkarnir hafa verið að útbúa með kennurum og félagi eldri borgara. Og þvílíkt úrval, það var slátur og lifrarpylsa, sviðasulta, fiski- og kjötbollur. Einnig voru bakaðar skonsur og flatbrauð steikt. Síðan passaði svo vel til að þennan dag átti að vera kjötsúpa í skólanum og var öllum boðið smakk. Svo voru líka búnar til karamellur upp á gamla mátann. Mjög flott.
Næst er það Háskólinn í viku, síðan vetrarfrí. Við erum búin að fá íbúð hjá kennarasambandinu á Sóleyjargötu og ætlum að vera þar frá laugardegi og fram á þriðjudag. Sæmi ætlar að taka sér frí og fljúga suður með Sveini og Birtu. Ég er búin að kaupa miða á Fló á skinni og hlakka mikið til að sjá það leikrit. Ég sá það í Iðnó í gamla daga og man óljóst eftir því, var ekki orðin 10 ára held ég.
Bókalesturinn gengur fínt, er komin á blaðsíðu 70 og eitthvað. Peysan hennar Kötu er komin til Reykjavíkur og ég er búin að prjóna einn kraga, það tók ekki langan tíma, ég var eina kvöldstund með hann.
Er þetta ekki jólagjöfin í ár? Það held ég nú, fljótleg og ódýr gjöf og flott yfir þessar svörtu flíkur sem allir eru í þessa dagana. Ætla að fitja upp á öðrum á eftir og hafa einhvern annan lit þar sem þessi fjólublái er, (já þetta er fjólublár, en ekki blár). En núna stendur til að fara að hnoða pizzudeig, ég og Sveinn Fannar ætlum að gera okkur sitt hvora pizzuna. Bauð honum á kaffihúsið í dag, það var ekki mikil traffik þar, en voða notarlegt að setjast niður og fá sér kaffi og panini. Það er sko engin kreppa hjá okkur.
Læt þetta duga að sinni... Klara
Loksins blogg...Klara Sigríđur Sveinsdóttir
Jæja, þá er loksins að koma blogg frá mér. Ég er bara búin að hafa svo mikið að gera að ég hef ekki mátt vera að þessu, einnig er ég farin að blogga á Wordpress í tengslum við skólann, þannig að áherslan er lögð á það blogg.
En ástæðan fyrir því að ég blogga núna er eitthvað ofvirknisástand sem hefur gripið mig þessa helgi. Mér tókst nefnilega að klára bókina sem ég byrjaði á þegar ég var fyrir sunnan. Ég fór í Eymundsson og keypti mér tvær bækur, önnur heitir Glerkastalinn og hin Horfinn. Tvær gjörólíkar bækur. Ég byrjaði á Glerkastalanum og var sem sagt að klára hana í gærkvöldi.

Þessi bók fjallar um ótrúlega æsku þessa rithöfundar og hvernig hún lifir af ótrúlegt harðræði. Foreldrar hennar lifa skrítnu lífi, faðirinn drykkfelldur og móðirin draumóramanneskja sem ætlar sér að verða listamaður, en ekkert gengur. Þeirra uppeldisaðferð er ,,það sem drepur þig ekki, herðir þig". Þessi rithöfundur á þrjú systkin og tvö þeirra hafa komist vel áfram í lífinu, það er aðeins sú yngsta sem eitthvað vesen hefur verið á. Þegar systkinin hafa aldur til flytja þau til New York frá foreldrunum og tekst að mennta sig og fá góð störf. Seinna koma foreldrarnir á eftir þeim en þau flytja ekki í íbúð heldur lifa á strætum stórborgarinnar, þangað til þau gerast hústökufólk. Seinna fengu þau svo að kaupa þá íbúð fyrir einn dollara. Ótrúleg lesning og ég mæli með henni.
Fleira sem ég hef verið að gera núna er að klára peysuna sem ég ætla að selja Kötu. Bara smotterí eftir, þannig að Birta getur tekið hana með suður um næstu helgi. Einnig var ég að klára að taka slátur rétt áðan. Birta hjálpaði að sauma og þetta tók lítinn tíma. Að vísu keypti ég það þannig að það var búið að brytja mör og sauma keppina, tók þrjú slátur og keypti 15 aukakeppi. Hlakka svo til að hafa slátur í matinn, ætla að gera það á mánudaginn. Það er sett stefnan á heimatilbúna pizzu fyrst Bjarmi er heima núna, það er vetrarfrí í skólanum hans núna.
Ég er í vettvangi á Eskifirði um þessar mundir, var síðustu viku og verð næstu viku líka. Síðan er stefnan sett á staðlotu og eftir það er vetrarfrí í skólanum. Sæmi ætlar að taka sér frí og koma suður með Birtu, Víkingi og Sveini Fannari og við erum búin að leigja íbúð frá Kennararsambandinu þennan tíma. Ég er búin að kaupa miða í Borgarleikhúsið, á Fló á skinni, og ætlum við sex að fara saman. Það verður örugglega mjög gaman. En nú er að fara að versla í pizzuna og plastpoka fyrir slátrið. Ætla svo að byrja á næstu bók sem er bresk sakamálasaga.
Þangað til næst... Klara.
Búin međ sjortarann!Klara Sigríđur Sveinsdóttir
Það hafðist, að klára bókina áður en ég byrja í skólanum. Tókst að klára bókina í flugvélinni á leiðinni suður. Já, nú er ég komin í borgina og skólinn að byrja eftir hádegi. Tókum fjölskyldurúnt upp í Hérað, ég, Bjartur, Birta og Víkingur og fengum okkur að borða á Subway. Skelfilega finnst mér sorglegt hvað allt er orðið subbulegt þar. Þetta eru bara krakkar sem vinna þarna og það virðist enginn metnaður vera í starfsfólkinu. Við vorum þarna rúmlega sex og það voru bara tvær tegundir af brauði til og sósuflöskurnar voru tómar og hálftómar og það var ekkert verið að fylla á. Að vísu var verið að baka brauð, eins gott því það kom hellingur af fólki meðan við vorum þarna. Það væri nú ferlegt ef það væri ekki grundvöllur fyrir Subway á Austurlandi.
Fékk gott flug, að vísu var svo stór maður sem sat við hliðina á mér að mér fannst ég fá bara hálft sæti, frekar óþægilegt. En ég sat bara og las allan tímann og eins og ég sagði áðan er Sjortarinn búinn. Fín bók. Ekta löggusaga með fínu plotti og óvæntum endi.
En nú er það skólinn eftir hádegi. Þetta verður þægileg vika, ég byrja eftir hádegi í skólanum í dag, verð allan daginn á morgunn, hálfan miðvikudaginn, frí á fimmtudaginn og allan föstudaginn. Flýg síðan heim á laugardaginn.
Heyri að einhver er komin á fætur frammi og ætla að fara og fá mér morgunkaffi með mömmu og pabba og kíkja í blöðin.
Þar til næst...Klara
Enn einni bók lokiđ...Klara Sigríđur Sveinsdóttir
Jæja, verð að setja inn smá færslu um bókalesturinn minn. Kláraði Flugdrekahlauparann einhvern tíma í síðustu viku og er hálfnuð með Sjortarann. Ég mæli með þessari bók þ.e. Flugdrekahlauparanum, en finnst þó Þúsund bjartar sólir betri. Hefði samt alls ekki viljað sleppa því að lesa þessa bók. Hún lýsir þeim hörmungum sem afganistar hafa búið við síðustu 40 árin eða svo. Innrás á eftir innrás í land þeirra og þessum hörmungum virðist ekkert vera að linna.

Mjög falleg og á sama tíma sorgleg þroskasaga tveggja drengja í Kabúl.
En eins og ég sagði er ég byrjuð á næstu bók og er ég á síðasta snúningi með hana, því skólinn byrjar næsta mánudag. Ef ég verð dugleg um helgina, gæti ég klárað hana. Þetta er frekar fljótlesin bók og þrælspennandi.
Flýg suður á morgunn og tek næstu viku í skólann og verslanir í Reykjavík. Ætla að kíkja í Ikea og versla inn í herbergið mitt. Stefni að því að mála það og gera það meira aðlaðandi en það er. Ætla að fá mér borðplötu í staðinn fyrir skrifborðið og þá get ég haft allt dótið á þessu borði og saumavélina líka. Gaman, gaman. Vona bara svo innilega að ég geti gefið mér tíma í þetta fljótlega.
Læt þetta duga að sinni... Klara
Framkvćmdir...Klara Sigríđur Sveinsdóttir
Jæja þá var ég að ganga frá staðfestingu á pöntun á baðinnréttingunni. Æðislegt. Nú verður baðherbergið klárað í haust. Þetta er stærsti bitinn þessi innrétting, kostar heilar 219000 kall og það eru bara skáparnir undir vaskinn. Klikkun, veit það en það verður engu til sparað þegar kemur að þessu baðherbergi. Síðan er ég búin að hafa samband við þá á Reyðarfirði og biðja um að hreinlætis- og blöndunartækin verði pöntuð. Svo er að fá hurð og hitavatnskút og þá ætla ég að verða fyrst í sturtu...

Þetta er ein útgáfa af innréttingunni. Við erum með þrjá 60 cm skápa og vaskinn ofan á miðjuskápnum. Það er líka gert ráð fyrir tveimur svona ljósahillum á baðinu. Seinna meir fæ ég mér svona glerskápa undir handklæði.
Við erum búin að taka tíma í þetta baðherbergi, en við höfum líka algjörlega unnið þetta eftir efni hverju sinni. Sjáum fram á að síldin reddi þessu öllu saman. Það liggur við að maður fari að hugsa um eldhús, nei ætli maður klári ekki allan yfirdrátt. Hann er allt of dýr. Þetta er ótrúlegur viðsnúningur. Sæmi búinn að vera atvinnulaus í rúmt ár, með smáafleysingu. Svo kemst hann í afleysingu í mánuð eða svo og við eigum enga ógreidda reikninga í heimabankanum. ÆÐI. Og búin að gera ýmislegt þennan tíma líka. Íslenska hugarfarið á svo vel við; þetta reddast allt saman.
Að öðru, nú er ég farin að gera mig klára fyrir 1. staðlotu. Keypti mér ótrúlega flott pennaveski. Það þarf að hugsa fyrir öllu. Stundarskráin er komin og þar sá ég að ég þarf ekki að byrja fyrr en eftir hádegi á mánudeginum. Fínt að taka þessu rólega til að byrja með. En vinnan byrjar í rauninni á morgunn, ég er að fara á tveggja daga námskeið á Reyðarfirði frá 10 til 4 báða dagana.
Bókalesturinn gengur hægt en gengur þó, er að lesa Flugdrekahlauparann og hún lofar góðu. Mæli með henni. Prjónaskapurinn gengur líka ágætlega, er að verða búin með bolinn. Veit samt ekki hvort ég verð búin með hana fyrir Menningarnótt. En það er allt í lagi. Það voru engin tímamörk sett.
En best að halda áfram að prjóna... Klara.
